Drekaskátar

"Við erum Drekaskátar, því ekki þið!?" Drekaskátar eru á aldrinum 7-9 ára og eru skátakrútt allra félaga

Drekaskátatarfið

Drekaskátar eru á eru á aldrinum 7-9 ára og er starfslýsingin að “vikulegir fundir í skátasveitinni þar sem unnið er í minni hópum” (BÍS).

Viðfangsefni Drekskátastarfs eru m.a. að taka þátt í starfi skátasveitar; fara í lengri ferðir og taka fyrstu skrefin í að bjarga sér í náttúrunni; átta sig á eigin þörfum og bregðast við þeim; og að tjá skoðun sína.

Drekaskátaforingjar vinna í þágu skátanna til þess að skipuleggja skemmtilegt og lærdómsríkt sveitastarf. Skátarnir mæta á fundi til að kynnast skátastarfi, eyða tíma með jafningjum í umhverfi þar sem annað er ekki í boði en að vinna saman, og kynnast félagslífi utan skóla.

Helstu upplýsingar

Hvenær eru fundir?
Fundir eru mánudaga frá 17:30-18:30
Hvar eru fundir?
Þeir eru í Skátaheimili Skjöldunga, Sólheimum 21a
Þarf að vera með skátaklút?
Æskilegt er að vígðir skátar mæti alltaf með klút 😊
Má koma og prófa?
Að sjálfsögðu, en beðið er um að það sé látið vita fyrir fund
Hverjir eru sveitaforingjar?
Arney og Hanna Greta eru sveitaforingjar
Hverjir eru aðstoðarsveitaforingjar?
Ása, Guðrún, Herdís, og Hildur eru aðstoðar

Á þitt barn heima í Drekaskátum?

Skráning í Skjöldunga