Útilífsskólinn

Ævintýralegt sumarnámskeið utandyra fyrir krakka á öllum aldri!

Útilífsskóli Skjöldunga er skemmtilegt sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 8-12 ára.

Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir, og margt fleira spennandi og skemmtilegt.

Nú er búið að opna fyrir skráningu Í Útilífsskóla Skjöldunga 2026! Við ætlum að bjóða upp á 6 vikur þetta sumarið með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá úti í góða veðrinu. Skráning fer fram á Abler Síðu Skjöldunga.

Námskeiðin á árinu 2026 eru dagsett þannig:

Námskeið 1

15 júní til 19 júní

Námskeið 2

22 júní til 26 júní

Námskeið 3

29 júní til 3 júlí

Námskeið 4

6 júlí til 10 júlí

Námskeið 5

4 ágúst til 7 ágúst

Námskeið 6

10 ágúst til 14 ágúst

Síðast uppfært 2026/04/21 17:58 (UTC)