Um Skjöldunga

Öflugt skátastarf í 70 ár.

Árgjald skjöldunga

Árgjald 2024-2025 er 52.000kr–.

Gerðar hafa verið breytingar á skráningu félagsgjalda frá því 2024. Nú verður ein skráning fyrir allt skólaárið frá september 2024 fram til júní 2025.

Áður þurfti bæði að skrá skáta að hausti og að vori. Annargjald 2024 var 23.000 fyrir önn eða 46.000 kr árgjald. Það hækkar nú upp í 26.000 á önn eða 52.000 árgjald sem greitt er fyrir í einu lagi.

Hvað felst í árgjaldinu?

Innifalið í árgjaldi er vikuleg dagskrá, sveitaútilegur, skátaklútur, merki sem skátinn vinnur sér inn (t.d færnimerki), einhvers konar félagseinkenni og niðurgreiðsla á félagsútilegum.

Systkinaafsláttur

Systkinaafsláttur er 10% sem kemur sjálfkrafa inn. Áfram er hægt að nota Frístundakort Reykjavíkurborgar til að greiða árgjald. Einnig er hægt að skipta greiðslum.

Til þess að auðvelda þessa breytingu viljum við biðja forráðafólk að vera í sambandi ef þetta kemur sér mjög illa.

Bankaupplýsingar

  • Kennitala 491281-0309
  • Bankareikningur 0323-26-004981
  • Tölvupóstur gjaldkera er [email protected].

Starfsmaður og skrifstofa

Starfsmaður fyrir 2024-2025 er Hanna Greta Jónsdóttir.

Opnunartímar skrifstofu eru á fundartímum sveita.

Hafa samband

Helstu netföng:

Símanúmer:

Annað tengt efni