Lög Skátafélagsins Skjöldunga

Samþykkt á aðalfundi 15. október 2026

1. gr.
Heiti félagsins og aðsetur
Félagið heitir Skátafélagið Skjöldungar. Aðsetur þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr.
Markmið félagsins
Markmið félagsins er að styðja börn og ungmenni til að verða ábyrgir, sjálfstæðir, virkir og hjálpsamir einstaklingar í samfélaginu, með því að beita skátaaðferðinni, starfa í anda skátalaganna og eftir grunngildum Bandalags íslenskra skáta.

3. gr.
Aðild að samtökum
Félagið er aðili að Bandalagi íslenskra skáta og Skátasambandi Reykjavíkur.

4. gr.
Aðild að félaginu
Fullgildur félagi telst sá skáti sem greitt hefur félagsgjald. Einnig telst sá fullgildur félagi sem skráður er í félagatal samkvæmt ákvörðun stjórnar.

5. gr.
Aðalfundur
Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda í september eða október ár hvert og boða skriflega til hans með minnst hálfs mánaðar fyrirvara. Með sama fyrirvara skal stjórnum BÍS og SSR tilkynnt um aðalfund.

6. gr.
Réttur til setu og atkvæðis á aðalfundi
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir fullgildir félagar í skátafélaginu Skjöldungum. Atkvæðisrétt hafa allir fullgildir félagar sem eru 13 ára á árinu eða eldri. Rétt til setu á aðalfundi með tillögurétti, án atkvæðisréttar, hafa fulltrúar stjórna BÍS og SSR og sérstakir boðsgestir stjórnar. Einnig hefur forráðafólk skáta rétt til setu á aðalfundi en hefur aðeins atkvæðisrétt í fjarveru skátans.

7. gr.
Verkefni aðalfundar
Verkefni aðalfundar eru:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Kynning skýrslu stjórnar og umræður um hana.
  3. Reikningar félagsins lagðir fram til umræðu og samþykktar.
  4. Tillögur til lagabreytinga lagðar fram til umræðu og afgreiðslu.
  5. Kosning stjórnar samkvæmt 8. gr.
  6. Kosning eins skoðunarmanns reikninga.
  7. Önnur mál.

Lög þessi skulu liggja frammi á aðalfundi.

8. gr.
Kosning stjórnar
Stjórn er kosin á aðalfundi. Hana skipa félagsforingi og fjórir eða fleiri aðstoðarfélagsforingjar sem skipta með sér verkum. Aðstoðarfélagsforingjar skulu fylla eftirfarandi hlutverk: gjaldkeri, dagskrárforingi, sjálfboðaliðaforingi og tengiliður baklands. Félagsforingi skal uppfylla kröfur Bandalags íslenskra skáta um hæfi til starfans. Gjaldkeri skal vera fjárráða.

Stjórnarfólk er kosið á aðalfundi til eins árs í senn. Félagsforingi skal kosinn sérstaklega en stjórnarfólk skiptir að öðru leyti með sér verkum.

9. gr.
Fundir og störf stjórnar
Hlutverk stjórnar er að vinna að markmiðum félagsins. Stjórn fer með málefni félagsins milli aðalfunda.

Stjórn fundar reglulega og skulu fundir haldnir mánaðarlega hið minnsta, nema yfir sumarmánuðina. Til stjórnarfunda skal boða allt stjórnarfólk.

Fulltrúi sveitarforingja, fulltrúi forráðafólks og starfsmaður félagsins skv. 11. gr. eiga rétt til setu á fundum stjórnar.

Stjórn setur reglur samkvæmt lögum þessum. Stjórn er heimilt að skipa nefndir til að fara með einstök mál eða málaflokka í nafni hennar.

10. gr.
Foringjaráð
Stjórn og sveitarforingjar mynda foringjaráð. Ráðið fundar reglulega, að jafnaði einu sinni í mánuði nema yfir sumarmánuðina. Foringjaráð er samstarfs- og stuðningsvettvangur foringja félagsins. Sjálfboðaliðaforingi, eða í fjarveru hans staðgengill úr stjórn, stjórnar fundum foringjaráðs.

11. gr.
Starfsmaður
Stjórn félagsins er heimilt að ráða starfsmann, einn eða fleiri. Hún ákveður starfssvið hans og starfskjör.

Starfsmaður getur ekki setið í stjórn félagsins en hefur rétt til setu á fundum stjórnar.

12. gr.
Lagabreytingar
Lögum þessum má breyta á aðalfundi séu 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna fylgjandi því. Tillögur að lagabreytingum skulu sendar með fundarboði.

13. gr.
Slit félagsins
Hætti félagið störfum skal Skátasambandi Reykjavíkur falin umsjá eigna þess. Skulu þær þá nýttar til æskulýðsstarfsemi í samráði við stjórn Bandalags íslenskra skáta þar til skátastarf er endurvakið á starfssvæðinu.


Lög þessi öðluðust fyrst gildi sunnudaginn 5. okt. 1969 er félagsforingi lýsti því yfir. Þeim var síðast breytt á aðalfundi félagsins 15. október 2026.

Breytingartillaga lögð fram af Sigurði V. Úlfarssyni á aðalfundi 12. mars 2008.

Breytingartillaga lögð fram af Stjórn á aðalfundi 29. febrúar 2024.

Breytingartillaga lögð fram af Stjórn á aðalfundi 15. október 2026. Breytingartillaga á breytingartillögunni lögð fram af Kríu Elínarbur á sama aðalfundi.

Síðast uppfært 2026/10/16 15:06 (UTC)