Fálkaskátar
"Við erum Fálkaskátar, því ekki þið!?" Fálkaskátar eru á aldrinum 10-12 ára og lífið í skátapartýinu!
Fálkaskátastarfið
Fálkaskátar eru á eru á aldrinum 10-12 ára og er starfslýsingin að “vikulegt starf í flokki, sveitarfundir reglulega” (BÍS).
Viðfangsefni Fálkaskátastarfs eru m.a. að skátinn standi á eigin fótum og hafi mikil áhrif á verkefnaval fólks og sveitar; læra að vinna í hóp og bera ábyrgð; aukin vitund um eigin líkama og getu og taka tillit til jafningja sinna; læra að búa sig fyrir útivist, skyndihjálp; og skapa úti í náttúrunni.
Fálkaskátaforingjar vinna í samvinnu með skátunum til þess að skipuleggja sína fundi. Unnið er með það að skátarnir fái frelsi til þess að ákveða hvað þau vilja gera og að foringjar komi því í verk, innan skikkanlegra marka. Hjá okkur er þetta gert með flokksforingjafundum, þar sem foringjar hvers flokks skýra fyrir sveitaforingjum sitt skipulag næstu þrjá fundi.

Helstu upplýsingar
Fundir eru miðvikudaga frá 18-19:30, nema annað sé tekið fram
Þeir eru í Skátaheimili Skjöldunga, Sólheimum 21a
Æskilegt er að vígðir skátar mæti alltaf með klút 😊
Að sjálfsögðu, en beðið er um að það sé látið vita fyrir fund
Valur Kári er sveitaforingi
Bryndís, Kjartan, og Tumi eru aðstoðar