­

Skátastarfið er að hefjast aftur (2022)

Fundartímar: Drekaskátar 7 – 9 ára (2013 – 2015)  Mánudagar 17:30 – 18:30 Foringjar: Gunnsa, Sunna, Hanna, Guðrún, Ingunn   Fálkaskátar 10 – 12 ára (2010 – 2012) Þriðjudögum 17:30 – 19:00 Foringjar: Valur, Pálmi, María Mist og Helena   Dróttskátar 13 – 15 ára (2007 – 2009) Fimmtudagar 19:30 – 21:00 Foringjar: Aron, Rafnar, Arney og Laura   Rekkar 16 – 18 ára (2004 – 2006) Þriðjudagar 19:30 –  21:00 Foringjar: Rafnar   Fjölskylduskátar 5 – 7 ára (2015 – 2017) + foreldrar & forræðisaðilar Sunnudagar 11:00 Foringjar: Stjórnarmeðlimir Skráning Starfsáætlun fyrir veturinn: 30.ágúst – Uppskeruhátíð útilífsskólans og kynningarfundur vetrarstarfs  5.sept – Starf hefst  19.sept – Foreldraskátafundur 30.sept – 2.okt – Félagsútilega – Afmælisútilega Skjöldunga vindáshlíð  Sveitarútilegur/innilegur í nóvember Des/jan – Jólafrí 6. jan 2023 – Þrettándakvöldvaka  Janúar – Vetrarskátamót 22. feb  – Aðalfundur Skjöldunga  24-26. mars Skátaþing á Akureyri Páskaútilega  Sumardagurinn fyrsti  Laugarnes á ljúfum nótum  Drekaskátamót Skátasumarið – 1 vika Útilífsskóli Skjöldunga  

Útilífsskóli Skjöldunga 2022

Námskeið í boði 2021 Námskeið 1 13. - 16. Júní (4 dagar) Námskeið 2 20. - 24. Júní Námskeið 3 27. júní - 1. Júlí Námskeið 4 4. - 8. Júlí Námskeið 5 2. - 5. Ágúst (4 dagar) Námskeið 6 8.  - 12. Ágúst Námskeið 7 15. - 19. Ágúst  Skráning Skátafélagið Skjöldungar ætlar að bjóða upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann sem haldið er í skátaheimili Skjöldunga í Sólheimum 21a. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt. Upplýsingar: Starfssvæði Útilífsskóla Skjöldunga eru Vogar, Heimar og Sundahverfi. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára. (fædd 2010 - 2014) Dagskráin stendur yfir frá kl. 9:00 til 16:00. Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti vel klæddir og tilbúnir í að vera úti allan daginn. Nestistímar eru þrisvar á dag og þurfa þátttakendur að taka með sér nesti fyrir daginn. Allir þátttakendur fá sendan með sér ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðsins í upphafi námskeiðs. Ef námskeiðið kemur ekki upp á skráningarsíðunni má senda póst með kennitölu barns og dagsetningu námskeiðs á skjoldungar@skatar.is og við aðstoðum ykkur. ATH. Námskeið 1 og 5 er einungis fjórir dagar (vegna 17. júní og Verslunarmannahelgarinnar)

Félagsútilega Skjöldunga 2021

Skráning Skjöldungar ætla saman í félagsútilegu í skála KFUM og KFUK í Ölveri til að fagna afmæli félagsins!  Skráning fer fram hér: https://www.sportabler.com/shop/skjoldungar/  Mæting er kl. 18.30 föstudaginn 15. október í skátaheimilið og heimkoma verður á sama stað um kl. 16:00 sunnudaginn 17. október.  Drekaskátum er boðið að gista í eina nótt. Mæting fyrir þá er í Ölver kl. 12 laugardaginn 16. október. Þeir koma heim með rútunni sunnudaginn 17. október.  Fjölskylduskátum er boðið að taka þátt í dagskrá sunnudagsins.  Þema útilegunnar er álfar.Hátíðarkvöld verður á laugardagskvöldi með skátavígslu.  Við óskum einnig eftir aðstoð frá foreldrum við eldamennsku og önnur létt verkefni  Hafi skáta sérþarfir varðandi fæðu þá þarf að láta okkur vita  Hér er hlekkur fyrir sjálfboðaliða og þá skáta með sérþarfir varðandi fæðu: https://forms.gle/yugJCDcxzeYHWohH8  Kostnaður fyrir helgina: 5.000 kr  Drekaskáta kostnaður: 2.500 kr  Skráningarfrestur er á miðvikudeginum 13. október Nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur Endilega hafið samband ef þið hafið einhverjar spurningar

Skráning er hafin

Mikilvægur póstu var sendur á alla þá skáta sem voru í félaginu síðasta vetur, því núna er skráning hafin fyrir næsta ævintýri  Mælum með að skrá skátana sem fyrst þar sem það er mikil eftirspurn eftir skátastarfinu og vegna þess eru núna fjöldatakmarkanir í Drekaskátunum (max 25) og Fálkaskátunum (max 30). Þetta er gert til að hámarka gæði skátastarfsins og auka ánægju skátana.Þegar sveitirnar eru fullar þá mun myndast biðlisti.  Notast verður við Sportabler til að koma upplýsingum og tilkynningum til foreldra og forræðisaðila skátanna. Mælum með að foreldrar fylgist vel með á Sportabler vefsíðunni eða í appinu. Skráning í félagið

Útilífsskóli Skjöldunga 2021

Námskeið í boði 2021 Námskeið 1 - Ath! 4. dagar 14.06.2021 - 18.06.2021 Námskeið 2  21.06.2021 - 25.06.2021 Námskeið 3  28.06.2021 - 02.07.2021 Námskeið 4  12.07.2021 - 16.07.2021 Námskeið 5  19.07.2021 - 23.07.2021 Námskeið 6 - Ath! 4. dagar 03.08.2021 - 06.08.2021 Námskeið 7  09.08.2021 - 13.08.2021 Skátafélagið Skjöldungar ætlar að bjóða upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann sem haldið er í skátaheimili Skjöldunga í Sólheimum 21a. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt. Upplýsingar: Starfssvæði Útilífsskóla Skjöldunga eru Vogar, Heimar og Sundahverfi. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára. (fædd 2009 - 2013) Dagskráin stendur yfir frá kl. 9:00 til 16:00. Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti vel klæddir og tilbúnir í að vera úti allan daginn. Nestistímar eru þrisvar á dag og þurfa þátttakendur að taka með sér nesti fyrir daginn. Allir þátttakendur fá sendan með sér ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðsins í upphafi námskeiðs. Ef námskeiðið kemur ekki upp á skráningarsíðunni má senda póst með kennitölu barns og dagsetningu námskeiðs á skjoldungar@skatar.is og við aðstoðum ykkur. ATH. Námskeið 1 og 6 er einungis fjórir dagar (vegna 17. júní og Verslunarmannahelgarinnar)

Páskafríið er byrjað 2021

Því miður þurfum við að taka smá pásu frá almennu skátastarfi  Við fylgjumst vel með stöðu málanna og látum ykkur vita um leið og nýjar upplýsingar koma fram!  Þótt allt sé lokað þá er enþá hægt að gera ýmiskonar skáta verkefni saman sem fjölskylda http://www.skatarnir.is/studkvi Svo er um að gera að taka gott páskafrí, slaka á og koma tvíefld til baka!  Rafrænt knús til ykkar allra

Skátasumarið 2021

Það verður skátamót í sumar !  Í sumar verða haldin þrjú minni skátamót fyrir skátafélög landsins á Úlfljótsvatni.  Skjöldungar munu fjölmenna á Úlfljótsvatn 7.-11. júlí 2021 á Skátasumarið!  Önnur félög sem verða á svæðinu með okkur eru Landnemar, Klakkur, Eilífsbúar, Vífill, Heiðabúar, Mosverjar og Faxi.  Ef einhverjir voru skráðir og búnir að greiða fyrir Landsmót skáta 2020, þá mun það gjald ganga upp í mótsgjaldið á þessu móti.  Mótið er opið öllum aldursbilum, fjölskylduskátum, drekaskátum og eldri.  Frekari upplýsingar um mótið munu koma á næstunni en nú fara foringjar og fararstjórn á fullt að undirbúa. Einnig er hægt að skoða heimasíðu mótsins  https://skatamot.is/

Skráning í Skjöldunga

Skráning í skátana fer fram í gegnum skatar.felog.isEf þú lendir í vandræðum með skráningu þá má hafa samband í gegnum skjoldungar@skatar.is Smelltu hér fyrir skráningu í Skjöldunga

Aðalfundur 2021

FundarboðAðalfundur skátafélagsins Skjöldunga verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar 2021 kl 20:00 í gegnum fjarfundarbúnað.Vefslóði á Facebook viðburðinn: https://www.facebook.com/events/456236832064577  Vefslóði á Aðalfund í gegnum Zoom:Hér er vefslóði á fundinn:https://us02web.zoom.us/j/84493858394?pwd=K2M5UnFrc0RJRTMxWDdJZ3pvMUx0UT09Meeting ID: 844 9385 8394Passcode: 21 Dagskrá aðalfundar:1. Skýrsla stjórnar2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar3. Lagabreytingar4. Kosningar5. Önnur mál Framboð og lagabreytingartillögur verða kynnt hér á síðunni um leið og þau berast. Framboð og lagabreytingartillögur berist á skjoldungar@skatar.is. Úrdráttur úr lögum sem má finna á vefsíðu skjöldunga:1. gr. Fullgildir félagar teljast drekaskátar, fálkaskátar, dróttskátar, rekkaskátar og róverskátar sem sækja reglulega æfingar og fundi og hafa greitt ársgjald. Fullgildir félagar teljast einnig eldri skátar, sem greitt hafa ársgjald.2. gr. Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda í febrúar eða mars ár hvert og boða bréflega með minnst hálfs mánaðar fyrirvara.3. gr. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar sem náð hafa 15 ára aldri. Atkvæðisrétt hefur félagsstjórn, allir sveitarforingjar og æðri foringjar sem greitt hafa ársgjald. Fyrir sveit er telur fleiri félaga en 30 má senda 1 atkvæðisbæran fulltrúa fyrir hverja 4 umfram 30.4. gr. Stjórn er kosin á aðalfundi. Hana skipa félagsforingi og 4 eða fleiri aðstoðarfélagsforingjar sem skipta með sér verkum. Stjórn fundar reglulega með foringjum. Stjórn er heimilt að skipa nefndir til að fara með einstök mál eða málaflokka í nafni hennar. Stjórn ákveður setu foringja og starfsmanns félagsins á fundum sínum.5. gr. Í stjórn félagsins hafa kjörgengi félagar í Skjöldungum sem náð hafa 18 ára aldri. PS. Foreldrar skáta í félaginu og aðrir velunnarar sérstaklega velkomnir.

Varðeldaskikkjur

Okkur langar að kynna fyrir ykkur varðeldaskikkjur Skjöldunga sem hægt verður að panta til 30. nóvember.Skjöldungar munu fjölmenna á Landsmót skáta næsta sumar og hlökkum við mikið til að vera öll í stíl í eins skikkjum á bæði landsmóti og öðrum skátaviðburðum næstu ár(atugi).Skikkjan er því tilvalin jólagjöf fyrir unga skáta!Pöntun á þessum skikkjum fer fram í gegnum eftirfarandi hlekk:https://forms.gle/zcGE3NpAhSLRNgMp9Þar má einnig nálgast myndir af skikkjunni og verð.Þetta er gæðaflík, hönnuð og framleidd á Íslandi af VARMA / Glófi ehf. Hún er hlý, slitþolin og falleg og hvetjum við alla til að panta hana sem fyrst