Viðburðurinn Útipepp verður haldinn við Hafravatn 13.-15. mars 2020.



Ef þú ert dróttskáti með áhuga á útivist og reiðubúinn í smá áskorun og fjör er bara eitt sem þú ert að fara að gera þess helgi. Þú ert að koma á Útipepp við Hafravatn!

Á þessum frábæra viðburði lærir þú meðal annars að undirbúa þig fyrir langar göngur að vetrarlagi, skyndihjálp, að gista úti í náttúrunni um vetur og allt sem því fylgir. 

Ásamt því stanslausa stuði og ævintýri sem fylgir öllum Peppviðburðum.


Þáttökugjald er 5000 kr. (Innifalið er kvöldmatur og hádegismatur á laugardegi og hádegismatur á sunnudegi). 

Annan mat þurfa þátttakendur að koma með sjálfir (morgunmat og snarl/kaffitími).


Skráning er opin en hún rennur út 11. mars.


Athugið að það er takmarkaður fjöldi þátttakenda svo skráið ykkur sem fyrst en síðast komust færri að en vildu!!!

Frekari upplýsingar á facebook viðburði.