Námskeið í boði 2021
Námskeið 1
13. – 16. Júní (4 dagar)
Námskeið 2
20. – 24. Júní
Námskeið 3
27. júní – 1. Júlí
Námskeið 4
4. – 8. Júlí
Námskeið 5
2. – 5. Ágúst (4 dagar)
Námskeið 6
8. – 12. Ágúst
Námskeið 7
15. – 19. Ágúst
Skátafélagið Skjöldungar ætlar að bjóða upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann sem haldið er
í skátaheimili Skjöldunga í Sólheimum 21a.
Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál,
útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt.
Upplýsingar:
Starfssvæði Útilífsskóla Skjöldunga eru Vogar, Heimar og Sundahverfi.
Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára. (fædd 2010 – 2014)
Dagskráin stendur yfir frá kl. 9:00 til 16:00.
Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti vel klæddir og tilbúnir í að vera úti allan daginn.
Nestistímar eru þrisvar á dag og þurfa þátttakendur að taka með sér nesti fyrir daginn.
Allir þátttakendur fá sendan með sér ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðsins í upphafi námskeiðs.
Ef námskeiðið kemur ekki upp á skráningarsíðunni má senda póst með kennitölu barns og dagsetningu námskeiðs á skjoldungar@skatar.is og við aðstoðum ykkur.
ATH.
Námskeið 1 og 5 er einungis fjórir dagar (vegna 17. júní og
Verslunarmannahelgarinnar)