Landsmót skáta 2014

Næsta landsmót skáta verður haldið að Hömrum við Akureyri dagana 20.-27. júlí 2014. Landsmót skáta eru stórkostleg upplifun fyrir alla þá sem taka þátt og nú hefur þú tækifæri til þess að koma og vera með!

Skátahreyfingin er alþjóðleg hreyfing barna og unglinga. Alþjóðastarf er því eðlilega mjög mikilvægt í allri okkar starfssemi. Eitt af meginmarkmiðum BÍS er að gefa skátum kost á þátttöku í alþjóðlegu skátastarfi. Landfræðilegar aðstæður hefta augljóslega möguleika allt of margra íslenskra skáta til heimsókna og persónulegra kynna skátasystkina sinna erlendis og því er alþjóðlegt landsmót kærkomið tækifæri fyrir okkur. Tækifæri til að bjóða til okkar skátum hvaðanæva að úr heiminum, skapa aðstæður fyrir gagnvirk kynni af menningu og viðhorfum hvors annars, læra hvert af öðru, efla bræðralag og skilning okkar á milli, án þess að þurfa að yfirgefa heimalandið. Það er alla vega staðreynd að eitt það eftirminnilegasta sem íslenskir skátar hafa frá landsmótum okkar eru kynni við erlend skátasystkini á mótinu að þeirra eigin sögn.​

Skráning á mótið hefst 1. október 2013.

Landsmót skáta 2014 í hnotskurn

Þema
Í takt við tímann

​Dagsetning
20. júlí til 27. júlí 2014

​Staður
Hamrar, útilífsmiðstöð skáta rétt innan við Akureyri, um það bil 5 km. frá miðbæ Akureyrar.

Mótsgjald
Kr. 54.000.-
Staðfestingargjald 10.000.- óafturkræft
við þetta gjald bætist sameiginlegur kostnaður skátafélaga, rútur, fararstjórn ofl.

​Netfang
landsmot@skatar.is​

​Aldur þátttakenda
Almenn dagskrá er fyrir skáta á aldrinum 10 til 22 ára.

​Mótsstjórn
Stjórn BÍS hefur skipað mótsstjórn Landsmót skáta 2014.
Þessi hópur býr yfir mikilli reynslu innan skátahreyfingarinnar og af mótshaldi og hefur komið að undirbúningi fjölmargra verkefna á vegum Bandalags íslenskra skáta á undanförnum árum. Það er mikill fengur fyrir BÍS þegar hópur reyndra skáta eins og þessi hópur gefa kost á sér til slíkra starfa og kann stjórn BÍS þeim sínar bestu þakkir fyrir.

Allar nánari upplýsingar um landsmótið er að finna á vef mótsins.

:: Skoða landsmótsvefinn.