Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur og formaður alþjóðaráðs Bandalags íslenskra skáta, var kosin í sex manna Evrópustjórn alþjóðahreyfingar skáta (World Organisation of the Scout Movement) þann 18. ágúst síðastliðinn.

Um 1,6 milljón skáta eru starfandi í 41 Evrópulandi og hefur þeim fjölgað mikið á undanförnum árum.

Hulda hefur setið í stjórn BÍS frá árinu 2006 og verið formaður eins af kjarna vinnuhópum Evrópustjórnar WOSM síðast liðin 3 ár.

Hulda er fyrsti íslendingurinn til þess að setjast í Evrópustjórn WOSM, en áður hafa þrír íslendingar setið í Evrópustjórn alþjóðasamtaka kvenskáta.

Hulda_wagggs