Útilífsskóli Skjöldunga 2022
Námskeið í boði 2021 Námskeið 1 13. - 16. Júní (4 dagar) Námskeið 2 20. - 24. Júní Námskeið 3 27. júní - 1. Júlí Námskeið 4 4. - 8. Júlí Námskeið 5 2. - 5. Ágúst (4 dagar) Námskeið 6 8. - 12. Ágúst Námskeið 7 15. - 19. Ágúst Skráning Skátafélagið Skjöldungar ætlar að bjóða upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann sem haldið er í skátaheimili Skjöldunga í Sólheimum 21a. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt. Upplýsingar: Starfssvæði Útilífsskóla Skjöldunga eru Vogar, Heimar og Sundahverfi. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára. (fædd 2010 - 2014) Dagskráin stendur yfir frá kl. 9:00 til 16:00. Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti vel klæddir og tilbúnir í að vera úti allan daginn. Nestistímar eru þrisvar á dag og þurfa þátttakendur að taka með sér nesti fyrir daginn. Allir þátttakendur fá sendan með sér ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðsins í upphafi námskeiðs. Ef námskeiðið kemur ekki upp á skráningarsíðunni má senda póst með kennitölu barns og dagsetningu námskeiðs á skjoldungar@skatar.is og við aðstoðum ykkur. ATH. Námskeið 1 og 5 er einungis fjórir dagar (vegna 17. júní og Verslunarmannahelgarinnar)