­

HELLISHEIÐAR-MADNESS

Helgina 25.-27. september halda Skjöldungar Hellisheiðar-Madness á Hellisheiði og gist verður í KÚT, BÆLI og DALAKOTI. Farið ferður í göngu, farið í heita-pottinn, frábærar kvöldvökur ofl.ofl. Skráning fer fram á vef skátamála en linkurinn er hér Kostnaðurinn verð að hámarki 2000,- fyrir ferðir fram og til baka en frekari upplýsingar má finna í skráningunni.   Sjáumst í brjáluðu stuði á Hellisheiði 25.-27.okt. Skjöldungar

Komdu og kynntu þér skátana

Miðvikudaginn 9.sept. kl 17:00 að Sólheimum 21a

Kynningardagur Skjöldunga

Skátafélagið Skjöldungar halda kynningardag á skátastarfinu miðvikudaginn 9.september kl 17:00-18:30 Kynningin verður í skátaheimilinu Sólheimum 21a og er hún fyrir börn fædd 2007-2000 Sjáumst hress á miðvikudaginn :) Skjöldungar

Fundartímar haust 2015

  Fundartímar verða sem hér segir: Drekaskátar: (fædd 2005-2007) Mánudagar kl: 17:00-18:30 Fálkaskátar: (fædd 2002-2004) Miðvikudagar kl: 17:30-19:00 Dróttskátar: (fædd 1999-2001) Miðvikudagar kl: 20:00-21:30   Sjáumst í sumar með bros á vör :) Skjöldungar

   

Páskaútilega

Páskaútilega Skjöldunga verður 27.-29.mars og verður farið í KSÚ á Úlfljóstsvatni. Brottför/ferðir: Farið verður frá skátaheimilinu Sólheimum 21a kl.19:00 föstudaginn 27.mars og farið verður með rútu. Komið verður í bæinn aftur á sunnudeginum 29.mars kl 12:00 Drekaskátar verða sóttir á laugardeginum kl 20:00 á Úlfljótsvatni eftir kvöldmat. Kostnaður er 2500,-  sem er vegna ferðakostnaðar og skal greiðast í síðasta lagi við brottför. Hér er hlekkur inn á skráningu í útileguna. Allur matur, gisting og efniskostnaður er innifalinn í árgjaldi. Hafiru einhverjar spurningar, athugasemdir eða ábendingar, máttu gjarnan koma þeim til okkar á skjoldungar@skjoldungar.is Dagskrá útilegunnar er á þessa leið: Föstudagur: Brottför kl 19:00 frá skátaheimilinu. Komið á Úlfljótsvatn um 20:00 Kvöldvaka kl. 22:00 setning, og kvöldkaffi á eftir. Kyrrð kl 00:00 Laugardagur: 9:00 Ræs, fáni skálaskoðun og morgunmatur 10:00 Dagskrá 12:30 Hádegismatur 13:30 Dagskrá 17:00 Undirbúningur fyrir kvöldvöku 19:00 Hátíðarkvöldverður 20:00 Drekaskátar sóttir 21:00-21:30 Drekaskátar koma í skátaheimili 21:30 Hátíðarkvöldvaka 23:00 Kvöldkaffi 00:00 Kyrrð Sunnudagur: 9:00 Ræs, fáni og morgunmatur 9:45 Tiltekt 11:00 Brottför 12:00 Komið í skátaheimilið Kveðja Magnús Skátafélagið Skjöldungar

Vetrarmót Reykjavíkurskáta 2015

Vetrarmót Reykjavíkurskáta verður haldið að Úlfljótsvatni 16.-18.janúar og verður farið frá Skátamiðstöðinni Hraunbæ 123 á föstudagskvöldinu kl 20:00 stundvíslega. Vetrarmótið er fyrir fálkaskáta og eldri (ekki drekaskáta) og er nú haldið í fyrsta skipti en ætlunin er að gera þetta að árlegum viðburði. Engu hefur verið til sparað og verður þetta með glæsilegasta móti, en það kostar aðeins 4000,- á þetta skátamót. Helstu upplýsingar má finna hér. Skráning fer fram hér.

Þrettándagleði Skjöldunga

Þrettándagleði Skjöldunga verður haldin föstudaginn 9. janúar kl. 18:00-19:00 í skátaheimilinu Sólheimum 21a. Þetta verður í formi kvöldvöku og endum við svo með flugeldasýningu. Þrettándagleðin markar upphafið á nýrri starfs-önn hjá okkur en starfið fer aftur á fullt mánudaginn 12.jan. Sjáumst hress og kát á föstudaginn.    

HRISTINGUR!

Föstudaginn 21.nóv. ætlum við Skjöldungar að hafa "Hristing" þar sem allt félagið kemur saman og heldur einskonar útilegu æfingu með skemmtilegu ívafi. Hristingurinn stendur frá kl 20:00 á föstudegi til kl 13:00 á laugardeginum. Skátinn mætir með svefnpoka, föt til skiptanna, náttföt, tannbursta og lyf ef þarf. Boðið verður uppá kvöldkaffi, morgunmat og hádegismat. Frekari upplýsingar gefur starfsmaður skjoldungar@skjoldungar.is eða í síma 8216802. Sjáumst á hristingi

Fræðslukvöld – Verndum þau

Námskeið um vanrækslu og ofbeldi gegn börnum, möguleg úrræði og skyldur þeirra sem vinna með börnum . Ætlast er til þess að allir sveitarforingjar og aðrir sjálfboðaliðar sem vinna með börnum fari á þetta námskeið. Frekari upplýsingar má nálgast hér. Hægt er að skrá sig hér.