Útilífsskóli Skjöldunga 2021
Námskeið í boði 2021 Námskeið 1 - Ath! 4. dagar 14.06.2021 - 18.06.2021 Námskeið 2 21.06.2021 - 25.06.2021 Námskeið 3 28.06.2021 - 02.07.2021 Námskeið 4 12.07.2021 - 16.07.2021 Námskeið 5 19.07.2021 - 23.07.2021 Námskeið 6 - Ath! 4. dagar 03.08.2021 - 06.08.2021 Námskeið 7 09.08.2021 - 13.08.2021 Skátafélagið Skjöldungar ætlar að bjóða upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann sem haldið er í skátaheimili Skjöldunga í Sólheimum 21a. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt. Upplýsingar: Starfssvæði Útilífsskóla Skjöldunga eru Vogar, Heimar og Sundahverfi. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára. (fædd 2009 - 2013) Dagskráin stendur yfir frá kl. 9:00 til 16:00. Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti vel klæddir og tilbúnir í að vera úti allan daginn. Nestistímar eru þrisvar á dag og þurfa þátttakendur að taka með sér nesti fyrir daginn. Allir þátttakendur fá sendan með sér ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðsins í upphafi námskeiðs. Ef námskeiðið kemur ekki upp á skráningarsíðunni má senda póst með kennitölu barns og dagsetningu námskeiðs á skjoldungar@skatar.is og við aðstoðum ykkur. ATH. Námskeið 1 og 6 er einungis fjórir dagar (vegna 17. júní og Verslunarmannahelgarinnar)